Sony Xperia M - Lagalegar upplýsingar

background image

Lagalegar upplýsingar

SonyC1904/C1905/

Sony Mobile Communications AB eða dótturfyrirtæki þess í viðkomandi landi gefur út þessa handbók án nokkurrar

ábyrgðar. Sony Mobile Communications AB getur gert endurbætur og breytingar á þessari handbók sem

nauðsynlegar kunna að vera vegna prentvilla, ónákvæmni núverandi upplýsinga eða endurbóta á forritum og/eða

búnaði hvenær sem er. Slíkar breytingar verða þá gerðar á nýrri útgáfum notandahandbókarinnar.
©Sony Mobile Communications AB, 2013.
Allur réttur áskilinn.
Með tækinu er hægt að hlaða niður, vista og framsenda viðbótarefni, t.d. hringitóna. Notkun slíks efnis kann að vera

takmörkuð eða bönnuð með réttindum þriðja aðila, þ.m.t. en ekki eingöngu vegna takmarkana samkvæmt

ákvæðum höfundarréttar. Þú, en ekki Sony berð algera ábyrgð á því efni sem þú hleður niður í tækið eða framsendir

úr tækinu. Áður en þú notar viðbótarefni skaltu ganga úr skugga um að ætluð not séu í samræmi við leyfisskilmála

eða heimiluð með öðrum hætti. Sony ábyrgjast ekki nákvæmni, samkvæmni eða gæði utanaðkomandi efnis né

annars efnis frá þriðja aðila. Undir engum kringumstæðum er Sony ábyrgt á nokkurn hátt vegna misnotkunar þinnar

á utanaðkomandi efni eða efni frá þriðja aðila.
Þessi notendahandbók kann að vísa til þjónustu eða forrita sem þriðju aðilar veita. Notkun á slíkum forritum eða

þjónustu kann að krefjast sérstakrar skráningar hjá þriðja aðila og kann að vera háð sérstökum notkunarskilmálum.

Vinsamlegast lestu fyrst notkunarskilmála og viðeigandi persónuverndarstefnu þeirra forrita sem eru fengin á eða í

gegnum vefsíðu þriðja aðila. Sony tryggir hvorki né ábyrgist framboð eða afköst vefsvæða eða veittrar þjónustu

þriðja aðila.
Fjarlægðu rafhlöðuna til að sjá lagalegar upplýsingar, eins og CE-merkið.
Öll vöru- og fyrirtækjaheiti sem nefnd eru hér eru vörumerki og skráð vörumerki viðkomandi eiganda. Allur réttur

sem ekki er veittur skýlaust í handbók þessari er áskilinn. Öll önnur vörumerki eru eign viðkomandi eigenda.
Farðu á

www.sonymobile.com fyrir frekari upplýsingar.

Allar myndir hafa aðeins það hlutverk að gefa notendum hugmynd um vöruna og ekki er víst að þær lýsi tækinu

nákvæmlega.
Þessi vara er varin af tilteknum hugverkarétti Microsoft. Notkun eða dreifing á slíkri tækni utan vörunnar er óheimil

án leyfis Microsoft.
Eigendur efnis nota WMDRM-tækni (Windows Media stafræna réttindatækni) til að verja hugverkarétt sinn, þ.m.t.

höfundarrétt. Þetta tæki notar WMDRM-hugbúnað til að fá aðgang að WMDRM-vörðu efni. Ef WMDRM-

hugbúnaður getur ekki varið efni kunna eigendur þess að fara fram á að Microsoft afturkalli getu hugbúnaðarins til

að nota WMDRM til að spila eða afrita varið efni. Afturköllun hefur ekki áhrif á óvarið efni. Þegar þú hleður niður

leyfum fyrir varið efni samþykkir þú að Microsoft geti sent afturköllunarlista með leyfunum. Eigendur efnis kunna að

biðja um að WMDRM verði uppfært svo hægt sé að opna efni þeirra. Ef uppfærslu er hafnað getur verið að ekki sé

hægt að opna efnið sem biður um uppfærsluna.
Þessi vara er skráð með MPEG-4 og AVC leyfum til einkanota, ekki í viðskiptalegum tilgangi, notanda til að (i) kóða

myndefni í samræmi við MPEG-4-staðalinn („MPEG-4 myndefni“) eða AVC-staðalinn („AVC-myndefni“) og/eða (ii)

afkóða MPEG-4 eða AVC myndefni sem hefur verið kóðað af notanda til einkanota, en ekki í viðskiptalegum tilgangi,

og/eða fékkst hjá aðila með leyfi frá MPEG LA til að dreifa MPEG-4 og AVC myndefni. Ekkert leyfi er veitt eða

undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, þ.m.t. sem tengjast auglýsingum, notkun innanhúss

og notkun í viðskiptaskyni og leyfisveitingu, er hægt að fá frá MPEG LA, L.L.C. Sjá http://www.mpegla.com. MPEG

Layer-3 hljóðafkóðunartækni með leyfi frá Fraunhofer IIS og Thomson.

116

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.