Snertiskjár notaður
Plasthúð til varnar er fest á skjá tækisins þegar þú kaupir það. Þú ættir að fletta þessu
blaði af áður en snertiskjárinn er notaður. Annars virkar snertiskjárinn hugsanlega ekki
rétt.
Þegar kveikt er á tækinu og það látið vera aðgerðalaus í ákveðinn tíma myrkvast skjárinn
til að spara rafhlöðuna og læsist sjálfkrafa. Þessi læsing hindrar óæskilegar aðgerðir á
snertiskjánum þegar þú ert ekki að nota hann. Þú getur einnig notað persónulegan lás til
að vernda áskriftina þína og tryggja að einungis þú fáir aðgang að tækjaefninu þínu.
Skjár tækisins er gert úr gleri. Ekki snerta skjáinn ef glerið er sprungið eða brotið. Forðastu að
reyna að gera við skemmdan skjá. Glerskjár er viðkvæmur við falli og vélarhöggum. Í tilfelli af
kærulausri meðferð dekkar ábyrgðarþjónusta Sony ekki.
Opna eða auðkenna atriði
•
Bankaðu á atriðið.
Merkja við valkostir
Merktur gátreitur
Afmerktur gátreitur
Kveikt
Slökkt
Merkja eða afmerkja valkost
•
Pikkaðu á viðeigandi gátreit eða skiptu við hliðina á nafni valkosts.
Aðdráttur
Aðdráttarvalkosturinn sem er í boði fer eftir forritinu sem þú notar.
8
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Aðdráttur
•
Settu tvo fingur á skjáinn samtímis og klíptu þá saman (til að minnka aðdrátt) eða
glenntu þá í sundur (til að auka aðdrátt).
Þegar þú notar tvo fingur á skjánum fyrir aðdrátt er það aðeins mögulegt að nota aðdrátt ef
báðir fingurnir eru innan aðdráttarsvæðisins. Ef þú, til dæmis, vilt minnka aðdrátt á mynd,
tryggðu að báðir fingurnir séu inn á svæði myndarammans.
Fletting
Flettu með því að færa fingurinn upp eða niður skjáinn. Á sumum vefsíðum getur þú
einnig flett til hliðar.
Ekki er hægt að virkja neitt á skjánum með því að draga eða fletta.
Flett
•
Dragðu eða strjúktu fingri í þá átt sem þú vilt fletta á skjánum.
Til að fletta hraðar skaltu strjúka fingrinum snöggt í þá sem þú vilt fara á skjánum.
9
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Flett
•
Til að fletta hraðar, flettu með fingrinum í þá átt sem þú vilt fara á skjánum. Þú
getur beðið þar til skrunið stöðvast af sjálfum sér, eða stöðvað það með því að
banka á skjáinn.
Skynjarar
Tækið þitt er með nema sem greina bæði ljós og nálægð. Ljósnemarnir greina umlykjandi
birtustig og stilla birtustig skjásins í samræmi við það. Nálægðarneminn slekkur á
snertiskjánum meðan á símtölum stendur þegar eyrað er nálægt skjánum. Það kemur í
veg fyrir að þú kveikir ómeðvitað á einhverjum öðrum eiginleikum tækisins þegar þú ert
að tala í það.