Notkun GPS (Global Positioning System)
Í tækinu er GPS (hnattræn staðsetningarkerfi) móttakari sem notar merki frá gervitunglum
til að reikna út staðsetningu þína.
Þegar þú notar valkostinn sem þarf GPS-móttökubúnað til að finna staðsetninguna, tryggðu að
þú hafir beint útsýni af himninum.
Til að kveikja á GPS
1
Á heimaskjánum pikkarðu á .
2
Pikkaðu á
Stillingar > Staðsetningarþjónusta.
3
Merktu við gátreitinn
GPS-gervitungl.
Fá bestu afköstin
Þegar þú notar GPS (Global Positioning System) í fyrsta sinn getur það tekið 5 til 10
mínútur að finna staðsetningu þína. Til að hjálpa leitinni, tryggðu að þú hafir beina augsýn
að himninum. Stattu kyrr og skýldu ekki GPS (Global Positioning System) loftnetinu
(upplýsta svæðið á myndinni). GPS (Global Positioning System) merkin geta farið í
gegnum ský og plast, en ekki í gegnum flesta masaða hluti eins og byggingar og fjöll. Ef
staðsetningin finnst ekki eftir nokkrar mínútur skaltu fara á annan stað.