Sony Xperia M - Þráðlaus Bluetooth™‎ tækni

background image

Þráðlaus Bluetooth™ tækni

Notaðu Bluetooth™ valkostinn til að senda skrár yfir í önnur tæki sem eru samhliða

Bluetooth™, eða til að tengjast handfrjálsum aukabúnaði. Kveiktu á Bluetooth™

valkostinum í tækinu og búðu til þráðlausa tengingu við önnur tæki sem eru samhliða við

Bluetooth™ til dæmis tölvur, handfrjálsan aukabúnað og síma. Bluetooth™ tengingar

vinna betur innan 10 metra (33 feta) drægi, þar sem engir hlutir eru í veginum. Í sumum

tilvikum þarftu að para símann við önnur Bluetooth™ tæki.

Samvirkni og samhæfni milli Bluetooth™ tækja getur verið breytileg.

Kveikt á Bluetooth™ valkostinum og tækið þitt gert sýnilegt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar.

3

Pikkaðu á rofann við hliðina á

Bluetooth til að kveikja á Bluetooth™ valkostinum.

4

Pikkaðu á

Bluetooth. Tækið þitt og listi af Bluetooth™ tækjum sem eru til staðar

birtast.

5

Pikkaðu á nafn tækisins til að gera það sýnilegt öðrum Bluetooth™ tækjum.

Til að stilla tímalengd á sýnileika tækisins gagnvart öðrum Bluetooth™ tækjum

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Bluetooth.

3

Ýttu á og veldu

Fyrning sýnileika.

4

Veldu valkost.

93

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Gefa tækinu þínu nafn

Þú getur gefið tækinu nafn. Þetta nafn er sýnt öðrum tækjum eftir að þú hefur kveikt á

Bluetooth™ valkostinum og tækið þitt er stillt á sýnilegt.

Tækinu gefið nafn

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth™.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Bluetooth.

4

Ýttu á og veldu

Endurnefna síma.

5

Sláðu inn nafn á tækinu.

6

Pikkaðu á

Endurnefna.

Pörun við annað Bluetooth™ tæki

Þegar þú parar tækið við annað tæki geturðu t.d. tengt tækið við Bluetooth™ heyrnartól

eða Bluetooth™ bílasett og notað þau tæki til að hringja og svara símtölum.
Þegar tækið hefur verið parað við Bluetooth™ man tækið þitt eftir þeirri pörun. Þú gætir

þurft að slá inn aðgangskóða til að para tækið við Bluetooth™ tæki. Tækið reynir

sjálfkrafa að nota almenna aðgangskóðann 0000. Virki hann ekki skaltu kynna þér

notendahandbók Bluetooth™ búnaðarins til að finna aðgangskóða tækisins. Þú þarft

ekki að slá aðgangskóðann inn aftur næst þegar þú tengist pöruðu Bluetooth™ tæki.
Sum Bluetooth™ tæki, t.d. flest Bluetooth™ höfuðtól, krefjast þess að þú parir og tengist

hinu tækinu.
Þú getur parað tækið við nokkur Bluetooth™ tæki, en þú getur aðeins tengst við eitt

Bluetooth™ snið hverju sinni.

Tækið parað við annað Bluetooth™ tæki

1

Gakktu úr skugga um að tækið sem þú vilt para við tækið þitt hafi Bluetooth™

valkostinn virkan og sé sýnilegt öðrum Bluetooth™ tækjum.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Bluetooth. Öll Bluetooth™ tæki sem eru til staðar

birtast á lista.

4

Pikkaðu á Bluetooth™ tækið sem þú vilt para við tækið þitt.

5

Sláðu inn aðgangskóða, ef þarf, eða staðfestu sama aðgangskóðann á báðum

tækjum. Tækið þitt og Bluetooth™ tækið eru nú pöruð.

Til að tengja tækið við annað Bluetooth™ tæki

1

Ef þú ert að tengjast Bluetooth tæki sem krefst þess að þú parir tækið þitt saman

við það fyrir tengingu skaltu fylgja viðeigandi skrefum til að para tækin saman.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Bluetooth.

4

Pikkaðu á Bluetooth™ tækið sem þú vilt tengja við tækið.

Til að hætta pörun við Bluetooth™ tæki

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Bluetooth.

3

Undir

Pöruð tæki pikkarðu á við hliðina á heiti tækisins sem þú vilt hætta að

para við.

4

Pikkaðu á

Afpara.

Sendu og fáðu hluti með því að nota Bluetooth™ tæknina

Deila hlutum með öðrum Bluetooth™ samþýðanlegum tækjum eins og símum og tölvum.

Hægt er að senda og fá mismunandi tegundir hluta með því að nota Bluetooth™ atriðið,

eins og:

Myndir og myndskeið

Tónlist og aðrar hljóðskrár

Tengiliðir

Vefsíður

94

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að senda atriði með Bluetooth™

1

Móttökutæki: Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth™ valkostinum og að

tækið sé sýnilegt öðrum Bluetooth™ tækjum.

2

Senda tæki: Opnaðu forritið sem inniheldur hlutinn sem þú vilt senda og flettu að

hlutnum.

3

Eftir því um hvaða forrit og atriði ræðir gætirðu til dæmis þurft að styðja á atriðið,

opna atriðið eða ýta á . Aðrar leiðir til að senda hlut geta verið til staðar.

4

Veldu

Deila eða Senda.

5

Veldu

Bluetooth.

6

Kveiktu á Bluetooth™ ef um það er beðið.

7

Pikkaðu á heiti viðtökutækisins.

8

Móttökutæki: Samþykktu tenginguna, ef spurt er um það.

9

Senda tæki: Staðfestu flutninginn í mótökutækið ef beðið er um það.

10

Móttökutæki: Samþykktu komandi hlut.

Hlutir fengnir með Bluetooth™

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth™ valkostinum og að hann sé

sýnilegur öðrum Bluetooth™ tækjum.

2

Senditækið byrjar nú að senda gögn yfir í tækið þitt.

3

Sláðu inn sama aðgangskóða á báðum tækjum eða staðfestu leiðbeinandi

aðgangskóða, ef beðið er um það.

4

Þegar þér er tilkynnt um komandi skrá í tækinu, dragðu stöðustikuna niður og

pikkaðu á tilkynninguna til að samþykkja skráarflutning.

5

Pikkaðu á

Samþykkja til að ræsa skráarflutning.

6

Til að skoða framvindu flutningsins, dragðu stöðustikann niður á við.

7

Dragðu stöðustikann niður og pikkaðu á viðeigandi tilkynningu til að opna fenginn

hlut.

Til að skoða skrár sem mótteknar hafa verið með Bluetooth™

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Bluetooth.

3

Ýttu á og veldu

Sýna mótteknar skrár.